"Love the life you live. Live the life you love" |
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir |
Páskaeggjaleit hjá Nínu systur í dag
Á miðvikudaginn ætla ég að hlaupa til styrktar Einstökum börnum, en hún yndislega systir mín er í því félagi. Við vitum ekki hvaða sjúkdóm hún er að kljást við og ríkir því töluverð óvissa um framhaldið. Því er gott að geta lagt félaginu lið til að hjálpa þeim ótrúlegu hetjum sem í því eru eins og henni Nínu minni!
Hægt er að heita á mig, en allar upplýsingar eru á myndinni.
Þetta er líka uppáhaldið mitt ásamt súkkulaðihúðuðum granateplum sem eru við hliðiná þessu í Kosti í rauðum pokum í stað blárra :)
Þetta er þó ekkert mikið hollara en venjulegt sælgæti en rosalega gott, sérstaklega með góðu vínglasi. En þegar ég var í vínsmökkun í Napa Valley var boðið uppá súkkulaðihúðuð bláber með rauðvíninu á einum víngarðinum, það setti punktinn yfir i-ið og ég var því himinlifandi að finna þetta í kosti!
Í tilefni þess að það sé komin helgi langar mig að deila með ykkur uppáhalds namminu mínu. Þið getið borðað þetta nammi með örlítið betri samvisku! Mæli með því að þið prófið, það fæst í Kosti!
-Góða helgi :)!
submitted by withoptimism
Ótrúlega sterk og áhrifarík mynd
Ég varð 21 árs í nóvember og hélt smá kökuboð fyrir nánustu vinina. Afmælið mitt var eins og vanalega í miðjum próflestri en braut uppá lesturinn sem var mjög fínt :)
Mig langaði að baka eitthvað nýtt, eitthvað öðruvísi og ákvað því að gera tvær glæsilegar kökur sem ég hafði séð mynd af.

og þær heppnuðust líka svona vel! Þetta er líka roosalega auðvelt og eitthvað sem allir geta gert og öllum fannst gott :)
Ég bakaði bara 2 skúffukökur í hringformi. Gerði flórsykurskrem sem ég setti á milli og allann hringinn svo kakan varð brún og girnileg og orðin þykk, enda tvær kökur lagðar saman með krem á milli. Ég keypti svo helling af KitKat og braut þau öll í sundur og raðaði í kringum kökuna og setti borða utanum sem er meira til skrauts. Fyllti síðan uppí með 2-3 pokum af M&M.
Einfalt, fljótlegt og þægilegt
Gangi ykkur vel!

Appelsínuboost
Þessi er góður á morgnanna, frískandi en ekkert gríðarlega bragðmikill
Uppskriftin er ansi stór (ég nota oftast minni einingarnar) en stærri uppskriftin dugar fyrir tvo.
2 appelsínur
1/2-1 banani (ekki nauðsyn)
1/2- 1 bolli kókosmjólk
1 msk kókosolía
1/2 tsk lífrænt vanilluduft (sleppi ef ég á ekki til)
ca 1 bolli frosið mangó
1 tsk- msk hunang (eftir smekk)
50-80 gr kasjúnhnetur (lagðar í bleyti kvöldinu áður)
Klakar eftir smekk (4-8)
Uppáhalds naglalakkid - há rautt med glimmer - HL C03 (Taken with instagram)
Nemendamót Verzlunarskólans sýnir í ár Bugsy Malone. Miðað við myndbandið stefnir þetta í hörkusýningu og ég hef að sjálfsögðu nælt mér í miða sem gamall Verzlingur! Nína systir fær auðvitað að fara með mér enda jafnmikill aðdáandi Verzlósýninganna eins og ég. Unnur vinkona okkar beggja er líka formaður Nemendamótsnefndar og því er tilhlökkunin enn meiri. Góðir vinir ætla að koma með okkur að sjá sýninguna 12.febrúar. Nína er eflaust byrjuð að telja niður :)
SÚKKULAÐIBANANABOMBA
Þennan shake hef ég gert núna nokkrum sinnum, hann er rosaalega góður og fullkominn um helgar eða bara á venjulegum mánudagsmorgni :) Lífræna kakóið gerir hann eins og súkkulaðishake! Uppskriftin er nokkuð stór og ég minnka hana oft aðeins ef ég er aðeins að gera fyrir mig.
1 bolli möndlumjólk eða kókosmjólk
2 msk lífrænt eða hrátt kakó
50-80.gr kasjúhnetur (lagðar í bleyti í nokkra klst, ég geri það oftast kvöldinu áður)
1 banani
1 msk kókosolía
Nokkrir klakar (ég nota svona 5-6, stundum fleiri)
Úr þessu færðu alla þá orku sem þú þarft, prótín, kolvetni og góða fitu! Þetta er líka algjört nammi :)
Meiriháttar nemendamótssýning Verzló - Bugsy Malone. Snillingar. (Taken with Instagram at Austurbær)
Á þessu ári tók ég þá ákvörðun að hætta endanlega að drekka. Ég drakk reyndar kannski ekki nema 5 sinnum á síðasta ári svo...

![]()
Harry Potter
Birtir á Óðinsgötu (Taken with instagram)
Nýtt skipulag hafnarinnar að fæðast. Lítur vel út, þarna geta margir búið. (Taken with Instagram at Hafnarhúsið)
submitted by christeentatum
submitted by sv120862, toneandfit, and journeytoagoddess
(I workout!)